

Pep Guardiola er ekki alveg að kveðja Manchester City þrátt fyrir að hafa staðfest að hann hætti sem knattspyrnustjóri félagsins eftir tímabilið.
Spánverjinn mun stíga til hliðar eftir lokaleik City gegn Aston Villa á sunnudag og þar með lýkur tíu ára stjóratíð hans hjá félaginu. Guardiola hefur verið sigursælasti stjóri í sögu Manchester City og unnið alls 20 stóra titla á tíma sínum hjá félaginu.
Nú hefur verið staðfest að Guardiola taki við nýju hlutverki innan City Football Group sem alþjóðlegur sendiherra samstæðunnar.
Í nýja starfinu mun hann veita tæknilega ráðgjöf til félaganna innan samstæðunnar og taka þátt í sérstökum verkefnum og samstarfi.
Í yfirlýsingu frá Manchester City sagði meðal annars. „Þrátt fyrir að Pep hætti sem stjóri Manchester City mun hann halda áfram sambandi sínu við City Football Group sem alþjóðlegur sendiherra.“
City Football Group á eða rekur alls tíu félög um allan heim auk Manchester City sjálfs. Þar á meðal eru Girona á Spáni, Palermo á Ítalíu, New York City FC í Bandaríkjunum og Melbourne City í Ástralíu.
Guardiola hefur haft gríðarleg áhrif á uppbyggingu Manchester City undanfarinn áratug og virðist nú ætla að hjálpa samstæðunni að þróa önnur félög sín áfram.
Framtíð City á hliðarlínunni er enn óljós en Enzo Maresca hefur verið sterklega orðaður við starfið.