
Sveindís Jane Jónsdóttir var valin í landsliðshóp Íslands fyrir komandi leiki gegn Úkraínu og Spáni í undankeppni HM 5. og 9. júní. Er hún meidd sem stendur en vonast er til að hún verði klár.
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og þar sagði hann um helmingslíkur á að Sveindís nái leikjunum. Staðan verður metin næstu daga.
„Sveindís er meidd undir il núna og það verður tekin ákvörðun með hana undir lok næstu viku, hvort hún verði með eða ekki. Við ætlum að bíða og sjá hvernig næsta vika þróast,“ sagði Þorsteinn.
Leikirnir framundan eru afar mikilvægir, sér í lagi leikurinn gegn Úkraínu ytra. Með því að forðast tap þar tryggja Stelpurnar okkar sér þriðja sæti riðilsins og þar af leiðandi mun sterkari stöðu þegar kemur að umspili um sæti á HM á næsta ári.
Leikurinn gegn Spáni, sem fer fram hér heima, fjórum dögum síðar verður öllu erfiðari. Spánn er ríkjandi heimsmeistari.