

Knattspyrnusamfélagið í Sydney í Ástralíu syrgir nú Peter Flook sem lést aðeins 32 ára gamall eftir að hafa hnigið skyndilega niður í leik á dögunum.
Flook, sem var markvörður hjá utandeildarliðinu West Pennant Hills Redbacks, veiktist skyndilega í leiknum. Liðsfélagi hans og lögreglumaðurinn Anthony Boyd hófu strax endurlífgun og framkvæmdu hjartahnoð í meira en hálftíma áður en sjúkraflutningamenn komu á staðinn. Ekki tókst þó að bjarga lífi hans.
Flook var ekki aðeins þekktur innan knattspyrnunnar heldur einnig í tæknigeiranum í Ástralíu. Hann starfaði sem hugbúnaðarverkfræðingur hjá Audax, stofnaði fyrirtækið Data Caterer og sat í tækniráði Open Data Contract Standard.
Félag hans minnist hans með hlýjum orðum á samfélagsmiðlum.
„Hann elskaði fótbolta og naut þess að spila með vinum sínum. Hann lagði sig alltaf 100 prósent fram í fótboltanum,“ sagði meðal annars í yfirlýsingu félagsins.
Vinir og samstarfsfélagar hafa einnig lýst honum sem góðum vini, frumkvöðli og manni sem hafði mikil áhrif á fólkið í kringum sig.