

Stuðningsmenn Arsenal sem vilja tryggja sér sæti á mögulegum titilleik félagsins þurfa að greiða gríðarlegar fjárhæðir samkvæmt enskum miðlum. Miðaverð fyrir heimaleik Arsenal gegn Burnley á Emirates-leikvanginum hefur rokið upp þar sem liðið gæti tryggt sér enska meistaratitilinn í leiknum.
Arsenal verður meistari ef liðið vinnur Burnley á mánudag og Manchester City tekst ekki að leggja Crystal Palace að velli í kvöld. Mikill spenningur ríkir því meðal stuðningsmanna félagsins sem bíða eftir fyrsta Englandsmeistaratitlinum í 22 ár.
Venjulegir miðar eru löngu uppseldir og jafnvel dýrustu VIP-pakkarnir hafa horfið af markaðnum. Samkvæmt The Times kostar einn af glæsilegustu VIP-boxunum á Emirates allt að 130 þúsund pund.
Um er að ræða svokallaðan Executive Box N7 sem er staðsettur við miðlínu vallarins. Kassinn rúmar allt að 15 manns og fylgja meðal annars eftirlíkingar af Arsenal-treyjum, lúxusmatur, drykkir, sérmerkt leikskrá og fundur með fyrrum leikmanni félagsins.
Aðrir VIP-pakkar eru einnig í boði og kosta frá um 2.000 pundum upp í tæplega 15 þúsund pund á mann.
Arsenal styrkti stöðu sína í toppbaráttunni verulega þegar Manchester City missteig sig gegn Everton í síðustu viku og nú ríkir sannkölluð titilstemning í Norður-London.