
Real Madrid tekur það ekki í mál að selja ungstirnið Endrick í sumar.
Þessi 19 ára gamli Brasilíumaður er á láni hjá Lyon í Frakklandi, en hann fór þangað í janúar. Þar hefur hann slegið í gegn og fengið dýrmætar mínútur á háu stigi.
Real Madrid sér Endrick sem lykilmann til næstu ára og mun því ekki sleppa honum í sumar undir neinum kringumstæðum.
Vefmiðillinn Teamtalk segir að þetta séu skilaboðin sem ensku stórliðin Arsenal og Chelsea fengu á dögunum, er þau spurðust fyrir um leikmanninn.