

Aron Sigurðarson, leikmaður KR, telur ansi hæpið að um grín hafi verið að ræða þegar menn tókust á í leikmannagöngunum eftir leik liðsins við Val á laugardag.
KR vann leikinn 1-4 og eftir leik sauð upp úr ef marka má fréttir. Fótbolti.net fjallaði um það að átök hafi brotist út í leikmannagöngunum og að Hermann Hreiðarsson, þjálfara Vals, sé gefið að sök að hafa kýlt í þindina á Ástbirni Þórðarsyni, leikmanni KR-inga.
Hermann sagði í viðtali við sama miðil að málið hafi verið blásið hressilega upp í fjölmiðlum, hann hafi einnig rætt við Ástbjörn og allir hafi skilið sáttir.
Aron var hins vegar í viðtali við Þungavigtina í dag. Þar var hann spurður út í málið og hvort mikill hiti hafi verið.
„Það var það. Ég efa það að einhver sem tapar fótboltaleik 4-1 komi í góðu gríni og kýli mann eitthvað létt ef þeir ætla að kýla mann yfirhöfuð,“ sagði Aron.
„Þetta var ekkert grín, þetta var bara fáránlegt. Það er búið að grafa þetta sögðu þeir en það hefði mátt sleppa þessu.“