

Frank Lampard vill fá Ross Barkley til liðs við Coventry City og gera hann að fyrstu sumarkaupum sínum hjá félaginu.
Samkvæmt Alan Nixon, í gegnum Give Me Sport, hefur Lampard mikinn áhuga á að endurvekja samstarf sitt við Barkley og telur miðjumanninn geta orðið lykilmaður í sínu liði á næsta tímabili.
Barkley, sem er 32 ára gamall og fyrrum landsliðsmaður Englands, verður samningslaus hjá Aston Villa þegar tímabilinu lýkur og gæti því verið á leið frá félaginu án félagskiptagjalds.
Lampard og Barkley þekkja vel til hvors annars frá tíma sínum hjá Chelsea, þar sem Lampard stýrði miðjumanninum. Coventry lítur á Barkley sem mikilvæga reynslubombu sem gæti styrkt liðið verulega bæði innan vallar og utan.
Ef af félagaskiptunum verður mun Barkley bæta mikilli reynslu við hóp Coventry eftir langan feril í ensku úrvalsdeildinni.