fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
433Sport

Neville segir að þetta eigi að vera í forgangi hjá United í sumar – Nefnir fjórar stöður til að styrkja

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 4. maí 2026 21:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gary Neville telur að Manchester United þurfi að styrkja sig verulega í sumar og segir félagið þurfa að fá inn fjóra lykilleikmenn til að taka næsta skref.

United tryggði sér sæti í Meistaradeildinni með 3-2 sigri á erkifjendunum í Liverpool á sunnudag, en Neville segir að það breyti ekki því að hópurinn þurfi enn töluverða endurnýjun.

„Ég held að Manchester United þurfi vinstri bakvörð fyrir næsta tímabil því Luke Shaw hefur spilað hvern einasta leik á þessu tímabili og það gæti farið að segja til sín,“ sagði Neville í hlaðvarpi sínu.

Hann bætti við að liðið þyrfti einnig nýjan miðvörð og tvo miðjumenn. „Þetta eru fjórir algjörir forgangsstaðir hjá félaginu núna,“ sagði hann.

Neville nefndi jafnframt að ef félaginu tækist að losa sig við Mason Mount og fá fjölhæfari leikmann í staðinn gæti jafnvel komið til greina að bæta við fimmta leikmanninum.

Að mati Neville skiptir mestu máli að leikmennirnir sem komi inn verði af hæsta gæðaflokki.

„Þessir fjórir þurfa að vera alvöru toppleikmenn. Það er forgangsverkefnið hjá félaginu núna,“ sagði hann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni

Liverpool útilokar að selja sitt mesta efni
433Sport
Í gær

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum

Fyrirsætan sem elskar Ísland höfð að háði og spotti fyrir rangar fullyrðingar á samfélagsmiðlum
433Sport
Í gær

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?

Verður risastór ákvörðun tekin varðandi Ronaldo?
433Sport
Fyrir 2 dögum

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu

Lék undir stjórn Iraola og segir stuðningsmönnum Liverpool að búast við þessu
433Sport
Fyrir 2 dögum

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season

Íþróttavikan: Tíðindi úr Hafnarfirði, þjálfarabreytingar og silly season
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“

Sara Björk komin heim – „Mér þykir ótrúlega vænt um þennan klúbb“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal

Þessir sex koma til greina sem leikmaður ársins á Englandi – Þrír frá Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London

Líklegt að Slot hafni tilboðinu frá London