fbpx
Þriðjudagur 09.júní 2026
433Sport

Arsenal skrefi nær titlinum – City bjargaði stigi í Guttagarði

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 4. maí 2026 20:58

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Everton og Manchester City skildu jöfn, 3-3, í stórkostlegum markaleik í ensku úrvalsdeildinni þar sem City jafnaði í uppbótartíma.

Úrslitin eru frábær fyrir Arsenal sem getur orðið enskur meistari með því að vinna leikina þrjá sem liðið á eftir. Arsenal er með fimm stiga forskot á City sem á þó leik til góða.

Gestirnir komust yfir rétt fyrir hálfleik þegar Jérémy Doku skoraði á 43. mínútu.

Everton svaraði með frábærum kafla í síðari hálfleik. Tommy Barry jafnaði á 68. mínútu áður en Jake O’Brien kom heimamönnum yfir fimm mínútum síðar. Barry bætti síðan við sínu öðru marki á 81. mínútu og kom Everton í 3-1.

City neitaði þó að gefast upp. Erling Haaland minnkaði muninn á 83. mínútu og þegar allt stefndi í óvænt tap skoraði Doku sitt annað mark í sjöundu mínútu uppbótartíma og tryggði City dramatískt stig.

Jafnteflið gæti reynst dýrt fyrir Manchester City í toppbaráttunni á meðan Everton getur verið stolt af frammistöðu sinni þrátt fyrir að hafa misst sigurinn úr höndunum á lokasekúndunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

United telur sig geta haft betur gegn City um Anderson – Hann sagður klár í að hlusta

United telur sig geta haft betur gegn City um Anderson – Hann sagður klár í að hlusta
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Skotárás nálægt enska landsliðinu – Níu særðir og herða gæsluna í kringum liðið

Skotárás nálægt enska landsliðinu – Níu særðir og herða gæsluna í kringum liðið
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Eiginkona Messi gerir allt vitlaust með mjög djarfri mynd rétt fyrir leikinn gegn Íslandi

Eiginkona Messi gerir allt vitlaust með mjög djarfri mynd rétt fyrir leikinn gegn Íslandi
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Horfir enn til Ítalíu þó starf Van Persie hafi losnað

Horfir enn til Ítalíu þó starf Van Persie hafi losnað
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

City vill klára kaupin sem fyrst – Má fara í læknisskoðun þó HM sé í gangi

City vill klára kaupin sem fyrst – Má fara í læknisskoðun þó HM sé í gangi
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum
Origi kallar þetta gott
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Staðfesta komu Ögmundar – Framlengt við Ingvar

Staðfesta komu Ögmundar – Framlengt við Ingvar
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Fullyrt að Jón Daði hafi neitað að mæta í viðtal um helgina

Fullyrt að Jón Daði hafi neitað að mæta í viðtal um helgina