fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Hneykslaður á að þessi staða komi upp á Íslandi – „Er það eðlilegt?“

433
Sunnudaginn 26. apríl 2026 07:00

Frá Kaplakrikavelli.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Fannar og Hörður Snævar gerðu upp þriðju umferð Bestu deildar karla í Íþróttavikunni.

FH er aðeins með eitt stig eftir þrjá leiki, en liðið er mikið breytt frá því í fyrra og byggir á ungum leikmönnum. Jóhannes Karl Guðjónsson tók auðvitað við sem þjálfari í vetur.

„Manni finnst bara minna benda til viðsnúnings núna, ef þú horfir í gæði leikmannahópsins og þeir voru með refinn Heimi Guðjóns í fyrra,“ sagði Helgi eftir að hann benti á að FH hafi einnig farið hægt af stað í fyrra.

„FH er að fara alla leið í sinni stefnu og við sjáum það bara á ungu liði þeirra. Svo verður bara að koma í ljós hvort þetta er nógu gott,“ sagði Hörður.

FH spilar fyrstu fjóra leiki mótsins á útivelli þar sem grasvöllur liðsins er ekki tilbúinn.

„Þeir byrja mótið á fjórum útileikjum. Er eðlilegt að í efstu deild byrji eitthvað lið á fjórum útileikjum? Og í seinni umferðinni fá þeir nokkra í röð á heimavelli. Mér finnst skrýtið að við getum verið með mótið svona uppsett í efstu deild,“ bætti hann við.

„Það er auðvitað fyrst og fremst við liðin að sakast sem bjóða ekki upp á betri velli,“ benti Helgi þá á.

Þátturinn er í spilaranum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Hver er munurinn á því að toga í hár og að toga í hár?

Hver er munurinn á því að toga í hár og að toga í hár?
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar

Að öllu óbreyttu mun United ekki kaupa í þessa stöðu í sumar
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Myndband Sindra vekur athygli: Illa farinn eftir grófa tæklingu – Dómarinn gerði ekki neitt

Myndband Sindra vekur athygli: Illa farinn eftir grófa tæklingu – Dómarinn gerði ekki neitt
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta

Fyrrum leikmaður Manchester City á óskalista Arteta
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Stígur sjálfur til hliðar vegna rannsóknar – Gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsi

Stígur sjálfur til hliðar vegna rannsóknar – Gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsi
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Missir af HM og er niðurbrotinn

Missir af HM og er niðurbrotinn
433Sport
Í gær

Boltinn sé hjá rétthafanum eftir vonbrigðin á dögunum – Þurfi að setja þessar kröfur í komandi viðræðum

Boltinn sé hjá rétthafanum eftir vonbrigðin á dögunum – Þurfi að setja þessar kröfur í komandi viðræðum
433Sport
Í gær

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar

Talið að United gæti losað sig við allt að 13 leikmenn í sumar