fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Segir frá samskiptum við glerharðan tengdapabba sinn – Fær nánast aldrei hrós

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 24. apríl 2026 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Taylor Harwood-Bellis hefur sagt frá sambandi sínu við verðandi tengdaföður sinn, Roy Keane, fyrir brúðkaup þeirra í sumar.

Harwood-Bellis, sem leikur með Southampton, hefur verið í sambandi með dóttur Keane, Leah, síðan 2019 og parið trúlofaði sig árið 2024. Þau eignuðust dóttur, Iris, í desember 2025.

Keane er þekktur harðhaus og lítið fyrir að hrósa fólki fyrir það eitt að vinna vinnuna sína.

Varnarmaðurinn segir Keane hafa haft jákvæð áhrif á feril sinn og gefið sér góð ráð. „Hann er einn af þeim, fyrir utan fjölskylduna mína, sem ég veit að vill mér aðeins það besta,“ sagði Harwood-Bellis.

Hann bætti við að Keane sýni stuðning sinn en sé ekki maður sem hrósar mikið. „Hann segir ekki oft ‘vel gert’ nema ég hafi gert eitthvað sérstakt,“ sagði hann og grínaðist með að slíkt gæti gerst ef Southampton myndi vinna Manchester City.

Taylor Harwood-Bellis og Jan Bednarek. Getty Images

Southampton mætir einmitt City í undanúrslitum bikarkeppninnar um helgina þar sem liðið vonast til að koma á óvart. Harwood-Bellis virðist njóta góðs af leiðsögn goðsagnarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum

Tottenham og Úlfarnir á eftir sama leikmanninum
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Fær harkalega á baukinn fyrir brot sitt á Hlíðarenda um helgina – Sjáðu myndbandið

Fær harkalega á baukinn fyrir brot sitt á Hlíðarenda um helgina – Sjáðu myndbandið
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Benedikt ósáttur við framkomu Garðbæinga – „Erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta“

Benedikt ósáttur við framkomu Garðbæinga – „Erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Stígur sjálfur til hliðar vegna rannsóknar – Gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsi

Stígur sjálfur til hliðar vegna rannsóknar – Gæti átt yfir höfði sér sex ára fangelsi
433Sport
Í gær

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi

Ofurtölvan stokkar spilin eftir helgina – Arsenal meistari eftir allt saman en önnur Lundúnalið í miklu brasi
433Sport
Í gær

Myndband úr leik í barnaflokki í mikilli dreifingu – Var maðkur í mysunni?

Myndband úr leik í barnaflokki í mikilli dreifingu – Var maðkur í mysunni?