

Alisson Becker gæti verið á förum frá Liverpool í sumar ef marka má nýjustu fregnir.
Fulltrúar markvarðarins munu funda með forráðamönnum Liverpool í maí þar sem framtíð hans hjá félaginu verður rædd. Ekki er talið öruggt að Alisson verði áfram á Anfield á næsta tímabili.
Brasilíumaðurinn hefur verið lykilmaður hjá Liverpool frá því hann gekk til liðs við félagið og átt stóran þátt í velgengni liðsins á undanförnum árum. Því myndi brottför hans vera mikið áfall.
Engar nánari upplýsingar liggja fyrir um mögulega áfangastaði, en ljóst er að áhugi á honum yrði mikill ef hann yrði settur á sölulista.
Staða mála gæti skýrst eftir fundinn í maí þar sem framtíð eins besta markvarðar heims verður ákveðin.