fbpx
Mánudagur 20.apríl 2026
433Sport

FH á útivelli fjóra leiki í röð

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 20. apríl 2026 17:00

Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

FH og Valur hafa víxlað heimaleikjum í leik liðanna í 3. umferð Bestu deildar karla.

Leikurinn fer fram á fimmtudagskvöldið og verður hann á Hlíðarenda þar sem Kaplakrikavöllur, grasvöllur, er ekki klár í Íslandsmótið.

FH hefur spilað tvo útileiki í upphafi móts en spilar nú fjóra útileiki í röð.

Af vef KSÍ:

Vegna vallaraðstæðna hefur heimaleikjum FH og Vals verið víxlað.

Eftirfarandi leikjum hefur því verið breytt:

Besta deild karla

FH – Valur

Var: Miðvikudaginn 22. apríl kl. 18.00 á Kaplakrikavelli

Verður: Fimmtudaginn 23. apríl kl. 19.15 á N1-vellinum Hlíðarenda

Leikurinn heitir því Valur – FH

Besta deild karla

Valur – FH

Var: Sunnudaginn 12. júlí kl. 19.15 á N1-vellinum Hlíðarenda

Verður: Sunnudaginn 12. júlí kl. 19.15 á Kaplakrikavelli

Leikurinn heitir því FH – Valur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt