
Fyrrum framherji Liverpool, Divock Origi, hefur ekki spilað keppnisleik í 728 daga. Samningi hans við AC Milan var rift seint á síðasta ári.
Origi yfirgaf Liverpool sumarið 2022 og samdi við AC Milan í leit að meira spiltíma. Tími hans á Ítalíu gekk þó illa og hann var lánaður til Nottingham Forest tímabilið 2023–2024.
Síðasti leikur hans kom einmitt á lánstímabilinu með Forest, gegn Everton þann 21. apríl 2024. Eftir að hann sneri aftur til Mílanó var hann tekinn út úr aðalliði félagsins og æfði utan hóps.
Þann 23. desember 2025 var samningi hans við AC Milan formlega rift og síðan þá hefur Belginn verið án félags.
Origi er 31 árs og ólíklegt er að hann snúi aftur á næstunni. Hann er eins konar goðsögn á meðal stuðningsmanna Liverpool eftir að hafa skorað afar mikilvæg mörk fyrir félagið, þrátt fyrir að hafa aldrei verið fastamaður í liðinu.