fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Ummæli sjúkraþjálfara ekki það sem stuðningsmenn Liverpool vildu heyra

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 17. apríl 2026 10:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hugo Ekitike verður frá keppni í langan tíma eftir að hafa slitið hásin í leik Liverpool gegn Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni.

Framherjinn var borinn af velli í fyrri hálfleik og hefur nú verið staðfest að hann missir af restinni af tímabilinu og heimsmeistaramótinu. Slík meiðsli taka atvinnumenn yfirleitt 7–9 mánuði að jafna sig á en sérfræðingar telja að það taki mun lengri tíma að ná aftur fyrri getu.

Samkvæmt sjúkraþjálfaranum Dr. Rajpal Brar er endurhæfingin ekki aðeins líkamleg heldur einnig andleg. Leikmenn þurfa þá að endurheimta sprengikraft, hraða og snerpu, sem getur tekið marga mánuði eftir að þeir snúa aftur á völlinn.

Þá spilar einnig inn í ótti við að meiðast aftur, þar sem leikmenn geta hikað í návígjum, forðast 50/50 bolta eða ekki treyst líkamanum að fullu fyrst um sinn. Slíkt getur haft áhrif á frammistöðu og seinkað því að þeir nái sínu besta formi.

Ef allt gengur upp með aðgerð og endurhæfingu ætti Ekitike að ná sér að fullu, en talið er að það geti tekið 12–15 mánuði áður en hann finnur fyrra form.

Þetta er mikið áfall fyrir Liverpool, franska landsliðið og leikmanninn sjálfan, en hann hefur verið frábær á leiktíðinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Rekinn korter í HM

Rekinn korter í HM
433Sport
Í gær

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið

Opnar sig um að mjög frægur maður hafi heimtað nektarmynd – Tengdist loforði sem hún hafði gefið
433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Chelsea fær ansi góðar fréttir

Chelsea fær ansi góðar fréttir
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði

Sádarnir draga saman seglinn og Salah fær ekki sama tékka og áður var í boði
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið