fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Goðsögn hjá Arsenal segir sárt að horfa á liðið þessa dagana

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 16. apríl 2026 21:30

Ian Wright / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Goðsögn Arsenal, Ian Wright, hefur lýst yfir miklum áhyggjum af gengi liðsins á lokaspretti tímabilsins.

Arsenal er enn á toppi Premier League en hefur misst stig undanfarið, meðal annars í 2-1 tapi gegn Bournemouth. Liðið gerði einnig markalaust jafntefli við Sporting CP í Meistaradeildinni, þó það hafi tryggt sér sæti í undanúrslitum.

Wright segir frammistöðu liðsins valda sér miklum vonbrigðum. „Það er sárt að horfa á þetta. Það er eins og þetta sé að detta úr höndunum á þeim,“ sagði hann.

Hann telur að mistök leikmanna og óstöðugleiki geti reynst dýrkeyptur í titilbaráttunni, sérstaklega þar sem Manchester City andar ofan í hálsmálið á Arsenal og á leik til góða.

Roy Keane var þó ekki sammála og taldi Wright vera að gera of mikið úr stöðunni, þar sem Arsenal er enn með sex stiga forskot.

Wright svaraði því til að ekkert sé sjálfgefið í baráttunni og að liðið þurfi að sýna meiri stöðugleika ef það ætlar að halda toppsætinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands