
Íslenska kvennalandsliðið mætir Úkraínu í afar mikilvægum leik í undankeppni HM nú klukkan 18:30 á Laugardalsvelli.
Liðin berjast um 3. sæti undanriðilsins, sem kemur þeim í mun betri stöðu í umspili um sæti í lokakeppni HM í kjölfarið.
Byrjunarliðin eru komin í hús. Athygli vekur að hin unga Thelma Karen Pálmadóttir kemur inn í liðið.
Þess má geta að Glódís Perla Viggósdóttir landsliðsfyrirliði jafnar leikjamet Söru Bjarkar Gunnarsdóttur í dag, en hún leikur sinn 145. landsleik.
Byrjunarlið Íslands
Cecilía Rán Rúnarssdóttir
Guðrún Arnardóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir
Sædís Rún Heiðarsdóttir
Hildur Antonsdóttir
Alexandra Jóhannsdóttir
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
Thelma Karen Pálmadóttir
Sandra María Jessen
Sveindís Jane Jónsdóttir