fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Ómyrkur í máli um meint kynþáttaníð í vikunni

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 20. febrúar 2026 07:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnustjóri Chelsea, Liam Rosenior, segir að hver sá sem reynist sekur um kynþáttafordóma eigi ekki að starfa í kringum knattspyrnu.

UEFA rannsakar nú ásakanir þess efnis að Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid, hafi orðið fyrir kynþáttaníði af hálfu Gianluca Prestianni hjá Benfica í Meistaradeildinni. Prestianni neitar sök, en gæti átt yfir höfði sér minnst tíu leikja bann í Evrópukeppnum verði hann fundinn sekur.

„Ef leikmaður eða þjálfari er fundinn sekur um kynþáttaníð, þá á hann ekki heima í leiknum. Svo einfalt er það. Kynþáttaníð er óásættanlegt, sama hvort það tengist fótbolta eða samfélaginu almennt,“ sagði Rosenior.

„Þegar leikmaður er svona miður sín er það yfirleitt af ástæðu,“ sagði hann enn fremur og sagðist sjálfur hafa þurft að upplifa kynþáttaníð á ferli sínum sem leikmaður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki

KR-ingar á toppinn – Stórliðin unnu sína leiki
433Sport
Í gær

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt

Segir ákvörðun sína ekki tengjast öðru félagi á nokkurn hátt
433Sport
Fyrir 2 dögum

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið

Verður rekinn og fjórir eru orðaðir við starfið
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands