fbpx
Laugardagur 18.apríl 2026
433Sport

Salah sagður hafa gefið grænt ljós – Verðmiðinn ekki svo hár

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 11. febrúar 2026 13:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mohamed Salah er áfram orðaður við brottför frá Liverpool í sumar.

Samkvæmt Foot Mercato hefur Egyptinn gefið umboðsmönnum sínum grænt ljós á að hefja viðræður við Al-Ittihad í Sádi-Arabíu. Félagið hefur lengi haft áhuga á Salah og bauð meðal annars 150 milljónir punda í hann árið 2023, tilboði sem Liverpool hafnaði.

Salah skrifaði undir nýjan tveggja ára samning í apríl á síðasta ári, en nú virðist staðan hafa breyst. Talið er að hann sé mjög opinn fyrir félagaskiptum. Talað er um að Liverpool vilji aðeins um 26 milljónir punda fyrir hann í sumar, ári áður en samningur hans rennur út.

Al-Ittihad missti bæði Karim Benzema og N’Golo Kante í janúar og vill stóra stjörnu í sumar í staðinn.

Salah hefur auðvitað verið hvað besti leikmaður Liverpool síðan hann kom 2017 en svo virðist sem farið sé að hægjast á honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Rekinn korter í HM
433Sport
Í gær

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik

Svarar fyrir framtíð Mason Mount eftir síðasta leik
433Sport
Í gær

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar

Fengu leyfi til að fara á fyllerí í gær – Gæti haft áhrif í fallbaráttu deildarinnar
433Sport
Í gær

Gerrard spáir því að þessir maður missi vinnuna – Telur það ekki sanngjarnt

Gerrard spáir því að þessir maður missi vinnuna – Telur það ekki sanngjarnt
433Sport
Í gær

Goðsögn hjá Arsenal segir sárt að horfa á liðið þessa dagana

Goðsögn hjá Arsenal segir sárt að horfa á liðið þessa dagana