fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
433Sport

Carrick búin að gera eitthvað í tvígang sem Amorim tókst bara einu sinni

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 8. febrúar 2026 12:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Michael Carrick hefur þegar sett mark sitt á Manchester United sem bráðabirgðastjóri og er sagður hafa bætt eitt af „metum“ Ruben Amorim eftir aðeins fjóra leiki í starfi.

Carrick, 44 ára, tók við liðinu eftir að Amorim var látinn fara í janúar, eftir um 14 mánuði í starfi. Fyrrum miðjumaður United var ráðinn til loka tímabilsins og byrjunin hefur verið afar jákvæð. Hann hefur stýrt liðinu til sigra á Manchester City, Arsenal og Fulham í deildinni.

Fyrir leik gegn Tottenham stillti Carrick upp óbreyttu byrjunarliði og hafði einnig haldið sama liði milli leikja gegn City og Arsenal. Það þýðir að hann hefur tvisvar teflt fram óbreyttu liði á stuttum tíma.

Eina breytingin sem Carrick hefur gert á þessum fjórum leikjum var þegar Matheus Cunha kom inn í liðið fyrir meiddan Patrick Dorgu.

Þessi stöðugleiki í liðsvali er andstæða við tíma Amorim. Hann hélt aðeins einu sinni sama byrjunarliði í tveimur leikjum í röð í 47 deildarleikjum sínum, gegn Brighton og Nottingham Forest. Carrick virðist því leggja meiri áherslu á samfellu í liðsvali.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá

Guardiola ósammála umræðunni um leikstíl Arsenal og segist njóta þess að horfa á þá
433Sport
Í gær

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun

Íþróttavikan: Glódís Perla og Karólína Lea fyrir stórleikinn á morgun
433Sport
Í gær

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“

Victoria Beckham tjáir sig í fyrsta sinn um fjölskylduharmleikinn – „Höfum alltaf reynt að vernda þau“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands

Gamla konan á Ítalíu horfir til Englands
433Sport
Fyrir 2 dögum

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan

Hin þekkta sjónvarpskona vekur mikla athygli – Situr fyrir ber að ofan