Fyrsti þeldökki dómari í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, Uriah Rennie, er látinn 65 ára að aldri.
Þetta var staðfest í gærkvöldi en Rennie hafði glímt við erfiðan taugasjúkdóm og var vegna þess lamaður fyrir neðan mitti.
Rennie dæmdi sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni árið 1997 og skráði sig í sögubækurnar sem fyrsti dökki dómari deildarinnar.
Rennie átti mjög farsælan feril sem dómari en hann starfaði í efstu deild í 11 ár og dæmdi yfir 300 leiki.
Hann lagði flautuna á hilluna árið 2008 en hann er einn af tveimur þeldökkum dómurum til að dæma í efstu deild – hinn er Sam Allison sem dæmdi viðureign Sheffield United og Luton 2023.