

Því er haldið fram í Fichajes á Spáni að Manchester United íhugi alvarlega að fá David de Gea aftur til félagsins í sumar.
De Gea var hent í burtu frá United sumarið 2023 þegar Erik ten Hag var þá þjálfari liðsins.
Ten Hag vildi fá Andre Onana sem hefur staðið vaktina síðustu tvö tímabil í marki United með misjöfnum árangri.
Vitað er að Ruben Amorim vill fá nýjan markvörð í sumar og gæti De Gea verið góður kostur, hann getur komið frítt frá Fiorentina.
Í grein Fichajes segir að forráðamenn United játi að það hafi verið mistök að losa sig við De Gea og að möguleiki sé að hann komi aftur.