

Kevin de Bruyne hefur staðfest að hann sé að yfirgefa Manchester City í sumar, hann vann ensku deildina sex sinnum.
De Bruyne hefur verið meira á bekknum í vetur en hann er vanur og er nú orðaður við lið í Sádí Arabíu.
„Þið áttið ykkur kannski á því á hvaða leið ég er, ég fer beint í málið og segi ykkur að þetta eru síðustu mánuðir mínir hjá Manchester City,“ segir De Bruyne.

„Það er ekki auðvelt að skrifa þetta en sem fótboltamaður þá veistu að þessi dagur kemur. Þetta er sá dagur sem þið heyrið það frá mér.“
„Fótboltinn kom með mig til ykkar og í þessa borg. Eltast við drauminn minn, fólkið hérna gaf mér allt. Ég varð því að gefa allt til baka. Við unnum allt saman.“
De Bruyne er einn besti miðjumaður í sögu enska boltans.
Dear Manchester. 💙 pic.twitter.com/2EdhVYOLti
— Kevin De Bruyne (@KevinDeBruyne) April 4, 2025