Íslenska karlalandsliðið var í göngutúr á leikdegi í Reykjavík í gær er hópur fólks hrópaði á þá og kallaði þá nauðgara. Mikil umræða hefur verið um KSÍ síðustu vikurnar og féll stjórnin og formaðurinn sagði af sér. Sambandið hefur verið sakað um að hylma yfir meint kynferðisbrot landsliðsmanna. Guðjón Þórðarson er afi Ísaks Bergmann Jóhannessonar sem var með landsliðinu í göngutúrnum þegar atvikið átti sér stað. Guðjón tjáði sig um þetta í hlaðvarpsþættinum The Mike Show.
,,Það sem alvarlegast er ef þetta fer að stórskaða hreyfinguna og ekki bara hreyfinguna heldur fjölskyldur lítilla barna sem að standa frammi fyrir erfiðleikum,“ sagði Guðjón um umræðuna um KSÍ og landsliðið undanfarið.
Hann sagði Ísak hafa verið hluti leikmanna sem urðu fyrir hrópunum og köllunum frá fólki í Reykjavík í gær.
,,Hann hefur fengið þessa gusu ásamt mörgum öðrum sem að hafa ekkert til saka unnið og eru ekki annað heldur en með lífstíl upp á punkt og prik, upp á tíu.“
Guðjón segir jafnframt að þeir leikmenn sem eru í landsliðshópnum sem stendur stundi lífstíl sem sé til fyrrimyndar. Kynslóðaskipti eiga sér stað í landsliðinu þessi misserin.
,,Þessir strákar sem eru þarna núna, sem mynda framtíðarkjarna landsliðsins, þetta eru strákar sem hafa stundað lífsstíl sem er öðrum til eftirbreytni.“