
Rétt í þessu lauk fimm vináttulandsleikjum. Danmörk tók á móti Bosníu, England spilaði gegn Rómaníu, Skotland sótti Lúxemborg heim, Hollandi tók á móti Georgíu og loks mættust Moldóva og Azerbaijan.
Danir unnu nokkuð öruggan 2-0 sigur á Bosníu í lokaleik sínum fyrir EM í knattspyrnu. Braithwaite, sem leikur með Barcelona, skoraði fyrsta mark leiksins. Cornelius tvöfaldaði forystu Dana á 73. mínútu og gulltryggði þar með sigurinn.
Danmörk 2 – 0 Bosnía
1-0 Braithwaite (´18)
2-0 Cornelius (´73)
Englendingum er spáð góðu gengi á Evrópumótinu í sumar en þeir hafa ekki heillað í æfingaleikjunum. Englendingar tóku á móti Rúmenum í dag og unnu 1-0 sigur. Rashford skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu.
England 1 – 0 Rúmenía
1-0 Rashford (´68)
Skotar sigruðu Lúxemborg í lokaleik þeirra fyrir EM í knattspyrnu. Che Adams skoraði eina mark leiksins á 27. mínútu. Selimovic, leikmaður Lúxemborgar, fékk rautt spjald stuttu eftir markið.
Lúxemborg 0 – 1 Skotland
0-1 Che Adams (´27)
Hollendingar litu vel út gegn Georgíu og unnu öruggan 3-0 sigur. Depay, Weghorst og Gravenberch skoruðu mörkin.
Holland 3 – 0 Georgía
1-0 Depay (´10)
2-0 Weghorst (´55)
3-0 Gravenberch (´76)
Þá vann Moldóva 1-0 sigur gegn Azerbaijan. Damascan skoraði eina mark leiksins snemma leiks.
Moldóva 1 – 0 Azerbaijan
1-0 Damascan (´8)
Fyrr í dag mættust Austurríki og Slóvakía. Sá leikur endaði með markalausu jafntefli.