fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
433Sport

Kórdrengir kæra innbrot til lögreglu – „Skorum á þann sem tók dótið að skila því“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 30. september 2020 09:30

Davíð Smári Lamude (til vinstri) fyrrum þjálfari Kórdrengja © 365 ehf / Sigtryggur Ari Jóhannsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brotist var inn í geymslu sem Kórdrengir besta lið 2 deildar karla hefur yfir að ráða í vikunni. Talsverðum verðmætum var stolið úr geymslunni.

Allt stefnir í að Kórdrengir fari upp í ár en um væri að ræða magnað afrek, liðið hefur þá farið upp um þrjár deildir á þremur árum.

„Aldrei fær neitt að vera í friði!!!! Aðfaranótt þriðjudagsins var brotist inn í hvítu gámana við völlinn í Safamýri,“ er skrifað á Facebook síðu Kórdrengja.

Miklum verðmætum var stolið úr geymslunni en þar á meðal búnaður sem notaður er á leikdegi. „Þaðan var stolið búnaði sem við notum þegar leikir eru á vellinum þ.e. hátölurum og mixer ásamt snúrum. Málið hefur verið kært til lögreglu og ef einhverjir hafa upplýsingar um það þá skal hafa samband við lögregluna. Eins skorum við á þann sem tók dótið að skila því í Framheimilið við Safamýri.“

Aldrei fær neitt að vera í friði!!!! Aðfaranótt þriðjudagsins var brotist inn í hvítu gámana við völlinn í Safamýri….

Posted by Kórdrengir on Tuesday, 29 September 2020

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Guardiola lagði inn gott orð

Guardiola lagði inn gott orð
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Skjót viðbrögð hjá lækni björguðu lífi hennar – Missti fóstur og var með svæsna blóðeitrun

Skjót viðbrögð hjá lækni björguðu lífi hennar – Missti fóstur og var með svæsna blóðeitrun
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda

Xavi segir ástæðuna fyrir því að Messi sneri ekki aftur afar einfalda
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Tjáir sig um orðrómana fyrir leikinn gegn Arsenal

Tjáir sig um orðrómana fyrir leikinn gegn Arsenal
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Benedikt ósáttur við framkomu Garðbæinga – „Erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta“

Benedikt ósáttur við framkomu Garðbæinga – „Erum ekki að fara að henda fjórum milljónum í þetta“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Til í að bjóða markvörð til Liverpool á móti

Til í að bjóða markvörð til Liverpool á móti