fbpx
Fimmtudagur 07.ágúst 2025
433Sport

Íslenskar barnastjörnur sem náðu ekki að upplifa drauminn

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 9. júní 2020 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimur fótboltans getur verið grimmur, smáatriði og heppni geta skipt sköpum ef þú ætlar að ná alla leið. Ungir drengir, sem eiga sér þann draum að ná langt, missa hann oft fljótt úr höndum sér. Meiðsli, rangar ákvarðanir og fleira getur leikið þar stórt hlutverk. DV fékk til liðs við sig nokkra álitsgjafa til að skoða hvaða íslenskir leikmenn hefðu átt að ná miklu lengra en raun bar vitni, leikmenn sem höfðu allt til þess að ná langt. Um er að ræða leikmenn sem sköruðu fram úr mjög ungir að árum og mikið var látið með. Listinn gæti verið lengri en ákveðið var að skera niður við níu nöfn.


Viktor Unnar Illugason
Meiðsli á meiðsli ofan hafa einkennt feril Viktors Unnars Illugasonar sem var á sínum ein mesta vonarstjarna sem íslenskur fótbolti hafði séð. Hann var keyptur 16 ára gamall til Reading og það var slegist um hann, stórlið um alla Evrópu vildu fá Viktor. Sú saga er sögð að Reading, sem á svipuðum tíma fékk Gylfa Þór Sigurðssðon, hafi lagt mesta áherslu á að fá Viktor og þá rekið augun í Gylfa, sem gæti náð langt. Hjá Reading töldu allir öruggt að Viktor gæti orðið næsta stjarna liðsins. Alvarleg bakmeiðsli gerðu Viktori erfitt fyrir hjá félaginu, hann komst aldrei inn í aðalliðið. Hann kom heim til Íslands árið 2008 og gekk í raðir Vals. Síðan hann kom heim hafa meiðsli plagað hann og orðið til þess að hann hefur leikið í neðri deildum síðustu ár. Hann lék með Kórdrengjum í sumar en liðið komst upp úr neðstu deildarkeppni KSÍ.


Sigurður Donys Sigurðsson
Kraftur, snerpa, úthald og elding. Svona væri hægt að lýsa því hvernig Sigurður Donys frá Austurlandi hafi verið á sínum yngri árum sem knattspyrnumaður. Sjaldan hefur ungur drengur vakið jafn mikla athygli á Íslandi. Newcastle, Manchester United og Middlesbrough höfðu öll sýnt Sigurði áhuga og fylgst með framgangi hans. Hann fór ungur að árum frá Einherja, uppeldisfélagi sínu, í Þór á Akureyri þar sem hann meiddist mjög alvarlega og setti það strik í reikning hans. Hann hefur stundum prófað að vera í öðru liði en Einherja en hugurinn leitar alltaf heim.


Hjálmar Þórarinsson
Hjálmar byrjaði að vekja athygli fyrir frammistöðu sína með Þrótti 16 ára gamall árið 2002. Þar var á ferð öflugur framherji, klókari en flestir, sterkur og nokkuð áræðinn. Skoska stórliðið Hearts ákvað að festa kaup á Hjálmari en þar fékk hann lítil tækifæri. Eftir tæp þrjú ár í Skotlandi kom Hjálmar heim, árið 2007, og lék með Fram árið 2011. Síðan þá lék hann aðeins í neðri deildum. Það var árið 2014 sem Hjálmar opnaði sig um geðræn vandmál sín og skrifaði um það pistil. ,,Þunglyndi er ógeðslegt og ég óska ekki mínum versta óvini að ganga í gegnum það sem ég hef á síðustu þremur árum. Orsakirnar eru alls konar og úrræðin álíka flókin. Sum úrræði hjálpa manni mikið, önnur ekki svo mikið og mikill munur getur verið á milli alvarleika og mismunandi „útfærslum“ einkenna milli einstaklinga,“ skrifaði Hjálmar meðal annars.


Ingólfur Sigurðsson
Gæti enn orðið frábær spilari í efstu deild á Íslandi en Ingólfur fór mjög ungur að vekja athygli erlendra liða. Það var árið 2008, þegar Ingólfur var 15 ára gamall, sem hann gekk í raðir Heerenveen í Hollandi. Hann vakti athygli þar og margir héldu að þarna væri næsta stjarna hollenska fótboltans. Hann fór hins vegar að finna fyrir andlegum veikindum sem hann hefur svo rætt opinskátt í seinni tíð, Ingólfur kom heim árið 2009 og fór í KR en ári síðar var hann aftur farinn í hollenska félagið. Stoppið var stutt og síðan þá hefur Ingólfur spilað á Íslandi. Hann lék í sumar í næstefstu deild en á sér þann draum að finna sig í Pepsi-deildinni á nýjan leik.


Björn Jónsson
Hætti í fótbolta sumarið 2014 eftir aðeins einn leik með Kára í neðri deildum. Það heyrðu flestir talað um Björn Jónsson af Akranesi í kringum 2000 og í nokkur ár þar á eftir. Hann hætti hins vegar í fótbolta aðeins 24 ára gamall. Ungur að árum hélt Björn til hollenska félagsins Heerenveen, hann var hjá félaginu í nokkur ár en kom til Íslands árið 2011 og gekk í raðir KR. Þar náði hann aldrei neinu flugi vegna meiðsla. Björn gafst að lokum upp á fótboltanum, var með ótrúlega hæfileika til að vera í fremstu röð.


Rannver Sigurjónsson
Rannver er eitt mesta efni sem Breiðablik, þar sem besta unglingastarf landsins fer fram, hefur séð. Ótrúlegur styrkur og hraði varð fljótt vopn sem fáir réðu við í fari Rannvers, hann var 17 ára gamall byrjaður að láta til sín taka í Kópavoginum. Hann og allir aðrir bjuggust við því að atvinnumennskan kæmi, það var ekki spurning um hvort, heldur hvenær. Hann lék í nokkur ár í Kópavoginum en fór síðan í önnur lið og hætti loks sumarið 2013, þá 29 ára gamall.


Þórarinn Kristjánsson
Bjargvætturinn, Þórarinn Brynjar Kristjánsson úr Keflavík var 16 ára byrjaður að láta til sín taka. Eins og svo margir sem eiga að eiga glæsta framtíð fyrir sér, þá voru það meiðsli sem urðu til þess að Þórarinn náði ekki að gera neitt merkilegt úr ferli sínum. Hann lék með Keflavík stærstan hluta ferilsins og var oft öflugur, miðað við byrjunina á ferli hans og hæfileika þá hefði Þórarinn átt að ná miklu lengra en að vera á Íslandi í stundum ekkert alltof góðu formi.


Björn Orri Hermannsson
Nautið úr Árbænum var maður sem flestir töldu að myndi leika fjölda A-landsleikja í hjarta varnarinnar. Hann virtist hafa allan pakkann, 16 ára gamall var hann keyptur til Ipswich á Englandi en draumurinn rættist aldrei þar. Björn kom heim 18 ára gamall, árið 2007, en meiðsli urðu til þess að ferill hans komst aldrei af stað. Björn lék með yngri landsliðum Íslands og hefði með smá heppni getað náð mjög langt.


Sigmundur Kristjánsson
„Simmi Kristjáns, hann á eftir að verða stjarna,“ mátti oft heyra á völlum landsins í kringum 2000. Þá var Sigmundur farinn að vekja áhuga erlendra lið og árið 2001 samdi hann við Utrecht í Hollandi. Hann stoppaði ekki lengi þar og kom heim skömmu síðar. Meiðsli höfðu mikið að segja í því að Sigmundur náði aldrei að hámarka það úr ferlinum sem var mögulegt. Hann átti góð ár í KR frá 2005 til 2007. Sigmundur lék oftast sem kantmaður en hann var klókari en flestir og með hraða og styrk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Sjáðu hið stórfurðulega mark uppi á Skaga í gær

Sjáðu hið stórfurðulega mark uppi á Skaga í gær
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Krotar undir þrátt fyrir áhuga Ronaldo og félaga

Krotar undir þrátt fyrir áhuga Ronaldo og félaga
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fólki brugðið við að sjá nafn Ed Sheeran á listanum

Fólki brugðið við að sjá nafn Ed Sheeran á listanum
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tíðindi sem hafa áhrif á Rúnar Alex

Tíðindi sem hafa áhrif á Rúnar Alex
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Sjáðu þegar Patrick skrifaði söguna uppi á Skaga í gær

Sjáðu þegar Patrick skrifaði söguna uppi á Skaga í gær
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Ná samkomulagi við Liverpool

Ná samkomulagi við Liverpool
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Lars sendir kveðju til Íslands eftir óhappið: „Skilaboð frá gamla manninum sem getur ekki haldið sér heilum“

Lars sendir kveðju til Íslands eftir óhappið: „Skilaboð frá gamla manninum sem getur ekki haldið sér heilum“
433Sport
Í gær

Högg í maga Valsara

Högg í maga Valsara
433Sport
Í gær

Sjáðu mörkin er Blikar fóru illa með Val í stórleiknum

Sjáðu mörkin er Blikar fóru illa með Val í stórleiknum