fbpx
Þriðjudagur 12.ágúst 2025
433Sport

Stjörnustríðið heldur áfram – Rooney fjölskyldan rekur lögfræðinga sína

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 8. júní 2020 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enska götublaðið The Sun hefur síðustu ár flutt mikið af fréttum af Coleen Rooney og eiginmanni hennar, Wayne Rooney. Til að byrja með voru fréttirnar allt um persónulegt líf þeirra hjóna. Til að byrja með voru fréttir The Sun allar réttar, upplýsingarnar komu eftir að Coleen Rooney, hafði deilt upplýsingum með nánum vinum á Instagram.

Coleen skildi ekki af hverju allar þessar upplýsingar rötuðu í The Sun, hún var aðeins með nána vini á þessum lokaða Instagram reikningi. Það kom því ekkert annað til greina en að vinkona eða vinur hennar væri að leka upplýsingum í blaðið. ,,Í nokkur ár hefur einhver sem ég treysti til að fylgja mér á persónulegum Instagram reikningi, lekið upplýsingum í The Sun,“ skrifar Coleen.

Á síðasta ári sagði Coleen frá því að sú sem væri undir grun væri Rebekah Vardy, eiginkona Jamie Vardy fyrrum samherja Wayne Rooney. ,,Síðustu fimm mánuði hef ég deilt helling af falsfréttum til að sjá hvort það myndi rata í The Sun. Það gerðist, fréttir um að velja kyn af næsta barni í Mexíkó. Að ég væri að snúa aftur í sjónvarp og það nýjasta, að það væri leki í kjallaranum okkar,“ allt þetta rataði í The Sun og Rebekah Vardy var sú eina sem sá færslurnar. ,,Ég hef vistað allar myndir sem sanna að bara einn aðili hefur séð þessar sögur á Instagram. Það er Rebekah Vardy.“

Coleen ákvað að fara í mál við hana vegna þess og er það í ferli, lögfræðingar Coleen höfðu samt litla trú á málinu og létu hana vita af því. Hún varð bálreið og ákvað að reka teymi sitt og ráða inn nýja lögfræðinga.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Sýndu óásættanlega óvirðingu í leiknum í gær – Bauluðu þegar minning Jota var heiðruð

Sýndu óásættanlega óvirðingu í leiknum í gær – Bauluðu þegar minning Jota var heiðruð
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Mun Chelsea samþykkja skiptin?

Mun Chelsea samþykkja skiptin?
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Harðhaus Villa reif treyju Greenwood – Sjáðu slagsmálin

Harðhaus Villa reif treyju Greenwood – Sjáðu slagsmálin
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ofurtölvan spáir í spilin: Salah kemst ekki nálægt Haaland – Nýjasta stjarna United ekki líkleg

Ofurtölvan spáir í spilin: Salah kemst ekki nálægt Haaland – Nýjasta stjarna United ekki líkleg
433Sport
Í gær

Virðast hafa litla sem enga trú á Ten Hag

Virðast hafa litla sem enga trú á Ten Hag
433Sport
Í gær

Arteta virðist hafa bullandi trú: ,,Hann mun ganga frá þér“

Arteta virðist hafa bullandi trú: ,,Hann mun ganga frá þér“