Eins og greint var frá fyrir stuttu þá er mikil óvissa í kringum leik Hugins og Völsungs sem á að fara fram í dag.
Leikurinn átti að vera endurtekinn klukkan 16:30 í dag en leikur liðanna sem var spilaður í ágúst var á dögunum gerður ógildur eftir dómaramistök.
Í tilkynningu KSÍ var greint frá því að leikurinn skildi fara fram á Seyðisfjarðarvelli, heimavelli Hugins.
Í dag ákvað KSÍ hins vegar að færa leikinn yfir á Fellavöll á Egilsstöðum eftir að hafa fengið símtal frá Huginn í hádeginu.
Birkir Sveinsson, mótastjóri KSÍ, ræddi við Huginn fyrr í dag og þar sagði félagið Seyðisfjarðarvöll vera óleikhæfan. Vísir.is greinir frá.
Vísir hafði einnig samband við Örnu Magnúsdóttir, varaformann Hugins, nú rétt í þessu og þar segir hún að leikmenn Hugins séu tilbúnir til leiks á sínum heimavelli.
„Huginn er mættur í búning inn á velli. Áfrýjunardómstóll KSÍ úrskurðaði að leikinn skildi endurtaka á Seyðisfjarðarvelli og þar erum við,“ sagði Arna í samtali við Vísi.
Talið er líklegt að Völsungur fari því heim með 3-0 sigur í pokanum og gæti Huginn átt von á dágóðri sekt frá knattspyrnusambandinu.