

Búið er að fresta fimm leikjum sem áttu að fara fram í Championship deildinni í dag.
Um er að ræða leik Aston Villa og QPR þar sem Birkir Bjarnason hefði verið í fullu fjöri.
Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff munu ekki mæta Brentford á útivelli.
Þá fær Jón Daði Böðvarsson ekki að mæta sínum gömlu félögum í Wolves. Ekki er búið að fresta neinum leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Aston Villa P-P QPR
Barnsley P-P Norwich
Brentford P-P Cardiff
Sheffield United P-P Burton
Wolves P-P Reading