

Rafa Benitez fyrrum stjóri Liverpool minnir Jurgen Klopp á það að hann þurfi að vinna titla fyrir félagið.
Klopp er að fá mikið lof fyrir spilamennsku Liverpool en hann hefur ekki unnið bikar á tæpum þremur árum, hann hefur tapað tveimur úrslitaleikjum.
Benitez vann Meistaradeildina með Liverpool en á Anfield voru menn svekktir þegar hann vann ekki deildina.
,,Stuðningsmenn muna á endanum ekki eftir leikjum, þeir muna eftir titlum. Það er mikilvægt hvernig þú spilar en þar á eftir verður þú að vinna,“ sagði Benitez sem fer í dag með Newcastle á Anfield.
,Þetta Liverpool lið getur gert það, ég kann vel við að horfa á liðið spila.“
,,Liðið spilar með krafti en gæðum, þeir eru sterkir líkamleag og leggja mikið á sig. Þetta er mjög gott lið.„