fbpx
Mánudagur 11.maí 2026

Stundum staðið með þolendum

Ritstjórn DV
Mánudaginn 1. október 2018 12:30

Ljósmynd: DV/Bjartmar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það getur verið erfitt að taka afstöðu í málum þar sem orð er á móti orði. Það á við um mörg kynferðisbrotamál, nú síðast mál Orra Páls Dýrasonar sem hætti í hljómsveitinni Sigur Rós eftir að kona steig fram og sakaði hann um nauðgun. Nú skal alls ekki fullyrt um hvað er satt í þessu máli en það vekur óneitanlega athygli hversu margir standa við bakið á Orra Páli. Hefur rjóminn af tónlistarfólki og frægum Íslendingum tekið undir með færslu hans á Fésbók þar sem Orri Páll segir beinlínis að konan sem sakar hann um nauðgun sé ekki raunverulegur þolandi ofbeldis. Það kann vissulega að vera rétt.

Umræðan um kynferðisbrot hefur verið hávær undanfarin ár og er reglulega talað um að það eigi að standa með þolendum. Til dæmis sagði Stella Breim, ein skipuleggjenda Druslugöngunnar í sumar: „Með því að mæta á Druslu­göng­una er maður bæði að láta það í ljós að maður standi með þolend­um og að maður vilji sjá kerf­is­lega breyt­ingu í sam­fé­lag­inu okk­ar.“ Var einnig talað um það að fólk þyrfti að átta sig á því að þeir sem nauðga eru alls ekki skrímsli  eins og margir ímyndi sér heldur venjulegir menn.

Það er ekki auðvelt að standa alltaf með þolendum, sérstaklega ef maður þekkir þann sem er sakaður um nauðgun, en ef það á að standa með þolendum þá þýðir ekki að gera það bara stundum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 12 klukkutímum

Ný rannsókn – Megrunarlyf geta hugsanlega unnið gegn fíkn

Ný rannsókn – Megrunarlyf geta hugsanlega unnið gegn fíkn
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Arnar botnaði lítið í kollegum sínum – „Mér finnst þetta smá virðingarleysi“

Arnar botnaði lítið í kollegum sínum – „Mér finnst þetta smá virðingarleysi“
Pressan
Fyrir 14 klukkutímum

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það

Nú þarftu ekki lengur að þefa af handklæðinu – Hér er sannleikurinn um hversu oft á að þvo það
Pressan
Fyrir 15 klukkutímum

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn

Segir að Pútín hafi málað sig út í horn
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Arnar segir samband sitt við Akureyringa gott þrátt fyrir leiðindamál – „Ég held að það sé á báða bóga“

Arnar segir samband sitt við Akureyringa gott þrátt fyrir leiðindamál – „Ég held að það sé á báða bóga“
Eyjan
Fyrir 22 klukkutímum

Orðið á götunni: Kosningabomban sem ekkert er – hver lak og fyrir hvaða andstæðing?

Orðið á götunni: Kosningabomban sem ekkert er – hver lak og fyrir hvaða andstæðing?