fbpx
Föstudagur 08.maí 2026
Fréttir

Þjófur staðinn að verki – Brotist inn á heimili og í bifreiðar

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 12. desember 2018 05:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 23.13 í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í bifreið í miðborginni. Eigandi bifreiðarinnar kom að þjófinum í bifreiðinni en hann slapp á brott á hlaupum. Hann var í jakka merktum fyrirtæki. Sami þjófur virðist aftur hafa verið á ferðinni fyrr um kvöldið því klukkan 00.16 var tilkynnt um innbrot í bifreið í miðborginni. Þar var rúða brotin í bíl og úr honum stolið jakka merktum sama fyrirtæki og fyrrnefndur þjófur var í þegar hann var staðinn að verki.

Á ellefta tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot í tvær íbúðir í hverfi 103. þetta uppgötvaðist þegar húsráðendur komu heim. Málin eru í rannsókn.

Þrír ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um ölvun við akstur. Einn þeirra er einnig grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna og að hafa ekið án þess að hafa öðlast ökuréttindi.

Tveir ökumenn voru handteknir í gærkvöldi grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Báðir reyndust vera sviptir ökuréttindum og annar þeirra er einnig grunaður um vörslu fíkniefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun

Komin með ríkisborgararétt eftir hálfrar aldar búsetu á Íslandi og kostulega viðureign við Útlendingastofnun
Fréttir
Í gær

Vill hætta að selja áfengi á flugvöllum á morgnanna – „Hver þarf að vera drekka bjór á þeim tíma sólarhrings?“

Vill hætta að selja áfengi á flugvöllum á morgnanna – „Hver þarf að vera drekka bjór á þeim tíma sólarhrings?“
Fréttir
Í gær

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu

Björg Magnúsdóttir: Viljum meiri tengingu milli skóla og frístunda – íþróttir mikilvægar fyrir inngildingu
Fréttir
Í gær

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu

Eyþór vill hleypa sjálfkeyrandi bílum inn á akreinar Borgarlínu
Fréttir
Í gær

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“

Karen vill að sveitarfélög steinhætti þessu á sumrin – „Trylltasta meðferð á skattfé sem hægt er að hugsa sér“