Laust eftir klukkan sjö í morgun var kona handtekin í austurborginni eftir að hafa orðið valdur að umferðaróhappi. Hún er hvortveggja grunuð um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og að hafa ekið utan í aðra bifreið í miðborginni stuttu áður. Eftir að konunni hafði verið veitt aðhlynning á sjúkrahúsi var hún vistuð í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar og enn fremur þetta: Þrír einstaklingar voru handteknir í Breiðholti um klukkan átta. Er einn þeirra grunaður um rán, en þau öll grunuðu um fíkniefnalagabrot. Þau voru öll vistuð í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.