Á tólfta tímanum í gærkvöldi var tilkynnt til lögreglu að ekið hefði verið á ljósastaur í Hafnarfirði og lægi staurinn niðri. Það fylgdi sögunni að ökumaðurinn hefði yfirgefið vettvang en hefði skilið bifreiðina eftir. Skömmu síðar kom grunaður ökumaður aftur á vettvang og var hann þá handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og að hafa verið án ökuréttinda. Hann var vistaður í fangageymslu.
Klukkan fjögur í nótt var ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumaðurinn og farþegi í bíl hans voru með meint fíkniefni meðferðis. Ökumaðurinn var einnig með piparúða sem hann afsalaði til lögreglu.