

Lögreglan á Norðurlandi eystra skoðaði myndskeið þar sem sjá má Björn Braga Arnarsson áreita kynferðislega 17 ára stúlku á Akureyri. Í skriflegu svari til Vísis kemur fram að lögreglan ætli ekki með málið lengra nema að stúlkan sjálf stígi fram og greini lögreglu frá sinni hlið.
DV greindi frá því í dag að Lögreglan á Norðurlandi eystra að málið væri til skoðunar hjá embættinu. Í samtali við DV sagði Bergur Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.
„Við heyrðum af þessu fyrst í hádeginu í dag og við höfum ekki sest yfir þetta enn þá en ég reikna fastlega með því að við munum fara yfir málið og ræða við þá aðila sem tengjast málinu. Nú þegar þetta er komið í okkar vitneskju þá þurfum við bara að setjast yfir þetta og hafa samband við hlutaðeigandi, þannig eru þessi mál unnin.“
Hegningarlög eru skýr hvað þetta varðar, en í 199. grein almennra hegningarlaga segir: „Hver sem gerist sekur um kynferðislega áreitni skal sæta fangelsi allt að 2 árum. Kynferðisleg áreitni felst m.a. í því að strjúka, þukla eða káfa á kynfærum eða brjóstum annars manns innan klæða sem utan, enn fremur í táknrænni hegðun eða orðbragði sem er mjög meiðandi, ítrekað eða til þess fallið að valda ótta.“
Ofan á þetta bætist að lögregla skal hefja rannsókn hafi hún vitneskju eða grun um að slíkt brot hafi verið framið á barni yngra en 18 ára. Það er óháð því hvort viðkomandi barn hafi kært málið til lögreglu. Líkt og Bergur staðfestir í samtali við DV þá hefur lögreglan hafið skoðun á málinu.
Í frétt Vísis um ákvörðun yfirvalda segir að „niðurstaða rannsóknardeildar hafi verið sú að ekkert verði aðhafst af hálfu lögreglunnar, nema að fram komi framburður þolanda.“