

Óhætt er að segja blendin viðbrögð séu á samfélagsmiðlum vegna afsökunarbeiðni Björns Braga Arnarssonar. Líkt og DV hefur greint frá þá baðst hann afsökunar á Facebook-síðu sinni að hafa káfað á 17 ára stúlku um helgina.
Nú nærri hálfum sólarhring eftir að hann birti þá afsökunarbeiðni má sjá ansi misjöfn viðbrögð í athugasemdum við færsluna. Ljóst er að hann fær nokkurn stuðning, tæplega sexhundruð manns hafa lækað færsluna á Facebook-síðu hans og ríflega áttatíu hafa sett á hana hjartamerki. Sumir hrósa honum fyrir að taka á málinu. „Takk fyrir að taka àbyrgð. Takk fyrir að láta stelpuna ekki burðast með skömm, heldur taka skömmina strax til þín. Takk fyrir að taka ábyrgð, megi fleiri fylgja þessu fordæmi. (Ekki hegðuninni, en ábyrgðinni á mistökum),“ segir Inga Sör meðan Kristinn Hannesson segir: „Maður að meiri“.
Sumir gagnrýna hann þó harðlega og hafa nokkrar slíkar athugasemdir fengið á annan hundrað læka. „Er í alvöru verið að þakka honum að fyrir að taka á sig ábyrgð, þetta er fáránlegt,“ skrifar Einar Freyr Bergsson. Birgitta Snorradóttir furðar sig á því að honum sé hrósað. „Hefðir þú stigið fram ef þú hefði þessu ekki verið dreift opinberlega? Ég trúi ekki þessum kommentum hérna þar sem rignir yfir þig hrósi fyrir þessa hegðun bara vegna þess að þú skrifar fyrirgefðu á netinu,“ skrifar Birgitta. Önnur kona, Branddís Ásrún, telur hann ekki orða hlutina rétt. „Finnst orðið ósæmilegt ekki ná yfir brot á ólögráða stelpu,“ skrifar Branddís.
Daníel G. Daníelsson er harðorður og vill sjá málið fara fyrir dómstóla. „Ég hef enga samúð með kynferðisofbeldismönnum, sama hversu oft þeir biðjast afsökunar. Það sýnir styrkleika að taka myndband af þessu, ekki að senda út afsökunarbeiðni á undan umræðunni í örvæntingarfullri tilraun til að stýra henni og sefja hana. Ég vona að stúlkan noti allan þann styrk sem hún hefur til að fara með þetta mál alla leið fyrir dómstóla til að uppræta kynferðisofbeldi frægra karla,“ skrifar Daníel.
Nokkrar konur gagnrýna þó stúlkuna sem Björn Bragi káfaði á. „Aldrei hefði þetta verið tekið upp og skellt a netið ef þetta væri bara „einhver“ gaur útí bæ… þá hefði viðkomandi líklega slegið hann í burtu og sagt kannski perri og beðið hann að snerta sig ekki. ég er ekki að segja að það sé í lagi að snerta einhvern á þennan hátt án samþykkis en mér finnst alls ekki viðeigandi að setja svona á netið sama hvað málið er,“ skrifar Marta Kristín Jósefsdóttir.
Helga Erla Erlendsdóttir spyr hvað svo ung stúlka hafi verið að gera svo seint úti. „Sem kona styð ég ekki að menn séu að káfa ósæmilega konum. En eitt skil ég ekki hvað var ólögráða krakki að gera úti seint á sunnudagskvöldi? Svo finnst mér alveg einkennilegt hvað nútímakonur eiga erfitt með að lemja frá sér. Ekki fann ég fyrir neinni skömm þó strákfífl káfaði ósæmilega á mér ég gaf honum til kynna með ágætu kjaftshöggi að svona gerðu menn ekki. Og ég var ánægð með mig að afgreiða málið sjálf og ein. Káf og nauðgun er tvennt ólíkt finnst mér. Það eru margar konur og ungar stúlkur sem ég þekki til, sem berja frá sér ef það er gert á hlut þeirra (káfað) og málið dautt.“