fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
Fréttir

Thomas Møller segir Grænlendinga mikið fyrir hreinlæti – Lögregla hafnar ásökunum um harðræði

Ritstjórn DV
Mánudaginn 29. október 2018 16:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Thomas Møller Olsen sagði fyrir Landsrétti í dag að hann hafi þrifið rauða Kio Rio-bílinn vegna þess að Grænlendingar séu mikið fyrir hreinlæti. Thomas Møller var dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur, hann neitar fyrir það og skellir skuldinni á skipsfélaga sinn Nikolaj Olsen. Sagði Thomas Møller einnig að hann hefði horft á stjörnurnar þegar Nikolaj hafi keyrt á brott nóttina sem Birna lést, benti saksóknari á að það hefði verið skýjað þá nótt.

Vísir greinir frá því að Thomas haldi því fram að lögregla hafi beitt sig harðræði og því hafi frásögn hans breyst á milli þess að hann var yfirheyrður og fyrir héraðsdómi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður hafnaði því og benti á að verjandi Thomasar í héraði hefði aldrei gert athugasemdir við skýrslutökur lögreglu.

Aðspurður um hvers vegna hann hafi þrifið bílinn sagði Thomas: „Við Grænlendingar erum hreinlætisfólk, ég þurfti að skila bílnum hreinum.“ Fram kom í dómi héraðsdóms að blóð hefði fundist í bílnum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Margrét segir Reykjavík minna á Svíþjóð hvað varðar tafir og skriffinnsku – „Umfram allt hef ég þurft að bíða“

Margrét segir Reykjavík minna á Svíþjóð hvað varðar tafir og skriffinnsku – „Umfram allt hef ég þurft að bíða“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“

Innrás Ingu Sæland og Guðmundar Inga á TikTokið – „Og allir fara að hlæja að okkur“