

Á fjórða tímanum í nótt var tilkynnt um innbrot í veitingahús í Kjós. Sjónarvottur sá bifreið aka frá vettvangi. Málið er í rannsókn.
Einn ökumaður var handtekinn í nótt grunaður um ölvun við akstur. Annar var handtekinn grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna og að aka sviptur ökuréttindum en þar er um ítrekað brot að ræða. Akstur eins ökumanns var stöðvaður í nótt þar sem hann reyndist vera sviptur ökuréttindum.