Um kl. 5.30 í nótt átti óvenjulegt rán sér stað í hjálpartækjabúð Adam & Evu á Kleppsvegi. Tvær ungar stúlkur komu þá aðvífandi á litlum fólksbíl, líklega af gerðinni Hyundai i10, og bökkuðu þrisvar sinnum í gegnum útidyrahurð verslunarinnar. Þegar leiðin var greið stukku ræningjarnir út úr bílnum og hlupu inn í verslunina. Höfðu þær meðal annars á brott með sér kynlífsdúkku sem kostar rúmlega 300 þúsund krónur.
DV hefur undir höndum myndband af innbrotinu sem hægt er að horfa á hér fyrir neðan. Í því sést hvar bílnum er bakkað þrisvar sinnum inn í útidyrahurð verslunarinnar og í kjölfarið hlaupa ræningjarnir inn í verslunina og koma síðan hlaupandi út með fenginn. Meðal annars rándýra kynlífsdúkku. Á annar ræninginn í talsverðum erfiðleikum með að koma dúkkunni fyrir í aftursæti bifreiðarinnar. Það hefst að lokum og síðan bruna ræningjarnir út í nóttina.
Bílnúmer bifreiðarinnar er skráð á bílaleigu en heimildir DV herma að númeraplatan sé stolin.
Uppfært: Rétt er að benda á að í eftirlitsmyndavélinni kemur fram að klukkan sé um 6.30 þegar innbrotið á sér stað. Samkvæmt upplýsingum frá starfsmanni Adam & Evu er klukkan á eftirlitsmyndavélinni klukkutíma á undan áætlun sem skýrir misræmið í fréttinni og myndbandinu.