fbpx
Mánudagur 11.maí 2026
Fréttir

Valur segist ekki muna eftir dauða bróður síns: „Hann var farinn að sofa á undan hinum“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 4. apríl 2018 10:44

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Valur Lýðsson, sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um að hafa valdið dauða bróður síns, Ragnars Lýðssonar, segist ekkert muna sökum ölvunar. Verjandi Vals, Ólafur Björnsson, segir í samtali við RÚV hann hafi áttað sig á orðnum hlut þegar hann rankaði við sér um morgni síðastliðins laugardags. Valur er ábúandi á bænum Gýjarhóli II.

Þriðji bróðirinn var handtekinn en svo sleppt. Samkvæmt verjanda Vals er hann líkamlega fatlaður eftir heilablóðfall. „Ragnar heitinn mun hafa verið að keyra hann austur í heimsókn eins og þeir hafa oft gert. Hann var farinn að sofa á undan hinum og svo veit enginn meira hvað gerist,“ segir Ólafur í samtali við RÚV.

Lögregla hefur greint frá því að áverkar leiddu til dauða Ragnars Lýðssonar samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu krufningar. Ragnar fannst látinn að Gýgjarhóli II að morgni laugardagsins 31. mars síðastliðinn. Ragnar lætur eftir sig sambýliskonu og fjögur uppkomin börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa

Vilja byggja Fossvogsbrú á nóttunni – Lýst yfir áhyggjum af áhrifunum á heilsu íbúa
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur

Sonur Díönu var skilinn eftir í skólarútunni – Er með sjaldgæfan sjúkdóm sem getur verið hættulegur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið

Oddviti Miðflokksins segir ofbeldisatriði gegn „libba“ hafa verið „sprell“ – Flokkurinn fjarlægði myndbandið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað

Bjarni reyndi að hjóla með ruslið í Sorpu – Fékk skell þegar hann kom á áfangastað
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“

Sigríður Á. segir Hönnu Katrínu fara með ósannindi um stuðningsmenn ÍBV og Miðflokkinn – „Sker sig úr frá öllum forverum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu

Rústuðu íbúðinni og borguðu ekki leigu