fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Brad Pitt er reiður út í Angelinu: Tilbúinn að berjast við hana um börnin

Brad Pitt er sagður hafa viljað halda smáatriðum um skilnaðinn frá sviðsljósi fjölmiðla, börnum þeirra til hagsbóta

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 21. september 2016 10:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brad Pitt er reiður út í Angelinu Jolie eftir að hún sótti um skilnað frá honum og er tilbúinn að berjast við hana um forræði yfir börnum þeirra sex. Þetta segir heimildarmaður TMZ sem fjallaði fyrst um skilnað þeirra hjóna í gær.

Slúðurmiðlar vestanhafs hafa farið hamförum í umfjöllun um skilnað Pitts og Jolie undanfarinn sólarhring og hafa ýmsar ástæður verið nefndar fyrir því af hverju Jolie ákvað að sækja um skilnað. Látið hefur verið að því liggja að Jolie hafi verið óánægð með uppeldisaðferðir Pitts og framkomu hans í garð barna þeirra hjóna. Þá hefur því verið fleygt fram að Pitt hafi haldið framhjá eiginkonu sinni með frönsku leikkonunni Marion Cotillard, en þau leika saman í myndinni Allied sem verður frumsýnd síðar á árinu. Loks hefur verið þeirri kenningu verið haldið á lofti að Pitt hafi þótt sopinn helst til of góður og verið skapstór.

Í skilnaðargögnum sem Jolie hefur lagt fram fer hún fram á fullt forræði yfir börnum þeirra og er hún sögð óska þess að Pitt fái einungis að hitta þau. Þetta virðist hafa farið illa í Pitt og segir heimildarmaður TMZ að hann sé mjög reiður út í Jolie. Þá sé hann tilbúinn að „berjast“ við hana um forræði yfir börnunum sem eru á aldrinum 8 til 15 ára.

Pitt ku auk þess vera óánægður með það hversu hratt fregnir af skilnaðinum spurðust út. Það, hvaða leið Jolie ákvað að fara, hafi gert fjölskylduna að skotmarki papparazzi-ljósmyndara og blaðamanna sem svífast einskis til að ná af þeim myndum. Þetta hafi sett börn þeirra í ákveðna hættu. Mun Pitt hafa viljað að skilnaðinum – og smáatriðum í tengslum við hann – yrði haldið frá sviðsljósi fjölmiðla, börnum þeirra til hagsbóta.

Heimili hjónanna í Los Angeles er nú umkringt blaðamönnum og ljósmyndurum.

Heimildarmaður TMZ segir, eins og bent er á hér að framan, að Jolie hafi verið óhress með uppeldisaðferðir Pitts og verið búin að fá sig fullsadda af honum. Þá hafi áfengis- og grasneysla Pitts farið fyrir brjóstið á Jolie. Loks sé það skoðun Jolie að þau stefni í sitthvora áttina í lífinu og eigi ekki samleið lengur. Jolie vilji einbeita sér í meiri mæli að mannúðarmálum en Pitt vilji halda áfram að leika í kvikmyndum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Í gær

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla