

Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United, var handtekinn í Washington í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Bandarískir fjölmiðlar keppast við að greina frá þessu en Rooney var handtekinn á Dulles flugvellinum sem er í Washington.
Rooney hafði verið í Sádí Arabíu og horft á kappakstur en var svo handtekinn á flugvellinum vegna ölvunnar á almannafæri. Einnig er greint frá því að Rooney hafi blótað mikið er hann var drukkinn og var alls ekki til fyrirmyndar.
,,Farið til fjandans,“ öskraði Rooney á lögregluan og starfsmenn flugvallarins þegar þeir ætluðu að ræða við hann um ástand hans. Rooney hafði drukkið vel af áfengi og tekið svefnpillur.
Coleen Rooney, eiginkona Rooney er sögð vera að fá alveg upp í kok af því hvernig eiginmaðurinn fer með áfengi. Ef hann fær sér í glas án hennar, þá endar það oftar en ekki í blöðunum.
,,Hún hefur tjáð honum að hann sé ekki að fara út á lífið án hennar, hún var brjáluð þegar hún fékk símtalið um þetta og vildi hann strax heim. Hún sagði hann heimskan fyrir að haga sér svona,“ sagði heimildarmaður enskra blaða.
,,Hún sagði honum að gera ekki svona heimskulega hluti aftur, hún verður leið þegar hann hefur drukkið og gert heimskulega hluti. Hún telur það setja svartan blett á samband þeirra út á við.“