

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool lætur ekki þétta dagskrá liðsins trufla sig að hafa gaman með vinum og ættingjum.
Klopp fagnaði nýju ári í gær eins og margir þar var þýski stjórinn í miklu stuði.
Liverpool á stórleik á fimmtudag er liðið mætir Manchester City, þar getur Liverpool náð sér í tíu stiga forskot á toppi deildarinnar.
Klopp steig trylltan dans í partýi sem hann mætti í og það höfðu gestirnir gaman af.
Þennan tryllta dans Klopp má sjá hér að neðan.