fbpx
Miðvikudagur 13.maí 2026
433Sport

Kári Árnason: Skiptir litlu máli hvort Aguero eða Higuain byrji – Ekki farinn að huga að framtíðinni eftir HM

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 12. júní 2018 08:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Varnarjaxlinn Kári Árnason var brattur fyrir æfingu íslenska liðsins í Gelendzhik í morgun og segir að allt sé upp á 10 varðandi aðbúnað íslenska liðsins. „Þetta er bara frábært og yfir engu að kvarta. Æfingasvæðið er frábært eins og þú sérð og hótelið er bara fínt.“

Kári segist persónulega vera í góðu líkamlegu standi. „Ég náði tveimur 90 mínútum á móti Noregi og Ghana og það er mjög jákvætt fyrir mig persónulega. Ég er í góðu leikformi.“

Nokkuð hefur verið rætt um hugsanlegt byrjunarlið argentínska liðsins og eins og svo oft áður snýst umræðan um fremstu menn Argentínu sem eru þeirra sterkustu menn. Snýr umræðan að því hvort Sergio Aguero eða Gonzalo Higuain muni leiða framlínuna á mótinu. Aðspurður segir Kári það skipta litlu máli hvor þeirra byrjar.

„Þetta eru báðir leikmenn í heimsklassa. Við erum ekki búnir að fara svo langt að reyna að spá í byrjunarlið þeirra en ég held að það skipti litlu máli hvor byrjar. Þetta eru menn sem spila með Juventus og Manchester City sem lýsir kannski þeirra gæðum. Þannig að við verðum bara að sjá hvað gerist.“

Kári er á heimleið eftir mörg ár í atvinnumennsku, hann er á 36 aldursári og því farið að líða á seinni hlutann á flottum ferli hans. Aðspurður hvort hann sé farinn að íhuga framtíðina með íslenska landsliðinu eftir mót segist hann lítið vera að spá í það í augnablikinu.

„Ég ætla bara að taka einn leik í einu og reyna að njóta þess að vera hérna. Þannig að ég er ekkert að spá í þetta eins og staðan er í dag,“ segir Kári.

Viðtalið má sjá í heild hér að neðan en þar ræðir Kári einnig um aðstöðuna í Rússlandi miðað við þá sem var í Frakklandi, spennuna fyrir leikinn gegn Argentínu og það sem leikmenn gera milli æfinga í Rússlandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu

Arnar Gunnlaugs útskýrir valið á Ögmundi – Aron Sig var ekki í huga Arnars fyrir leikinn gegn Argentínu
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid

Þetta er fyrsti maðurinn sem Mourinho vill kaupa til Real Madrid
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“

Myndband: Rauk út af blaðamannafundi eftir sigur í gær – „Ertu svindlari?“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á

Birta samskipti dómara og VAR-herbergisins frá atvikinu í London um helgina – Hlustaðu á það sem gekk á