Mynd

Þjóðaratkvæðagreiðslan: Fengu hátíðarsal HÍ á fölskum forsendum – leyndu því að Áfram Ísland yrði með áróðursfund

Í dag birtist í Morgunblaðinu heilsíðuauglýsing þar sem auglýstur var opinn fyrirlestur svissneska lögfræðingsins Carls Baudenbachers um álitaefni varðandi hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fundarstjóri var auglýstur Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti. Fyrirlesturinn var auglýstur í hátíðarsal Háskóla Íslands.

Mynd

Ólafur Ragnar: „Það er það sem þú segir“

Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands gagnrýnir frá ýmsum hliðum þá sem segjast ætla að segja já í atkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi til að sjá hvers lags aðildarsamningur að Evrópusambandinu geti staðið Íslandi til boða. Slík rök standist ekki og að slíku verði hlegið innan Evrópusambandsins.

Mynd

Svarthöfði skrifar: Já-ið er í framsókn

Framsóknarflokkurinn berst með kjafti og klóm gegn því að íslenska þjóðin fái að taka afstöðu til samnings um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Einu sinni barðist Framsókn fyrir aðild Íslands að ESB en svo breyttist það. Nú er formaður í Framsókn sem hefur það helsta, jafnvel eina, baráttumál að Ísland megi aldrei fara í ESB.

Mynd

Pawel Bartoszek: Gæðafólk bæði meðal nei-sinna og já-sinna – vildi alveg hafa marga nei-sinna í mínu liði

Það er gott fyrir þjóðina að hafa stjórnmálamenn af þeim kalíber sem Kristrún Frostadóttir er. Það er mikilvægt að umræða fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB sé hófstillt og yfirveguð. Það er gott fólk í báðum fylkingum og fólk á ekki að koma sér fyrir í skotgröfum þótt það greini á um aðildarviðræðurnar.

Mynd

Birgir Hermannsson skrifar: Ísland best í heimi

Andstæðingar Evrópusambandsins hafa löngum átt heimili í Heimssýn, þverpólitískum samtökum Evrópuandstæðinga. Með árunum hefur Heimssýn orðið að sérviskulegum sértrúarsöfnuði, yfirbragðið gamaldags. Andstæðingum Evrópusambandsins finnst oft eins og að einhver erlendur aðili sé að taka eitthvað frá þeim, eða að þeim sé ógnað með einhverjum hætti.