Þjóðaratkvæðagreiðslan: Fengu hátíðarsal HÍ á fölskum forsendum – leyndu því að Áfram Ísland yrði með áróðursfund
Í dag birtist í Morgunblaðinu heilsíðuauglýsing þar sem auglýstur var opinn fyrirlestur svissneska lögfræðingsins Carls Baudenbachers um álitaefni varðandi hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Fundarstjóri var auglýstur Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti.