Hörðustu andstæðingar þess að þjóðin segi 29. ágúst já við aðildarviðræðum við Evrópusambandið líta örugglega svo á að þeim hafi borist dýrmætur liðstyrkur í Ólafi Ragnari Grímssyni fyrrverandi forseta lýðveldisins. Ólafur Ragnar hellir sér af ákafa í baráttuna fyrir nei-inu og kastar fram kröftugum fullyrðingum eins og ekkert sé. Það er engu líkara en hann sé snúinn aftur í stjórnmálin. Óneitanlega grunar mann að ef hann ætti í dag að velja sér stjórnmálaflokk til að styðja myndi hann halla sér að Miðflokknum.
Á dögunum var Ólafur Ragnar í viðtali hjá Frosta Logasyni á efnisveitunni Brotkast. Þar sagði Ólafur Ragnar að ef þjóðin segði já 29. ágúst og færi í samningaviðræður við Evrópusambandið og úr því kæmi aðildarsamningur væri engin trygging væri fyrir því að sá samningur færi í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ríkisstjórnin hefur ítrekað lofað slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin tekur mark á því loforði meðan Ólafur Ragnar gefur lítið fyrir það. Í viðtalinu við Frosta sagði hann: „Það er ekkert í ferlinu hvorki af hálfu Evrópusambandsins né af hálfu íslenska stjórnkerfisins sem gerir það nauðsynlegt að hafa aðra þjóðaratkvæðagreiðslu.“
Ólafur Ragnar sagði að vonandi yrði önnur þjóðaratkvæðagreiðsla en sagði enga tryggingu fyrir því að svo yrði. „Í eðli sínu er þetta bara kosningaloforð frá Þorgerði Katrínu að það verði önnur þjóðaratkvæðagreiðsla.“
Ólafur Ragnar hefur réttilega verið harðlega gagnrýndur fyrir þessi orð. En ekki af öllum. Vitaskuld fékk hann stuðning frá formanni Miðflokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, sem sagði: „Það að fram fari önnur atkvæðagreiðsla er bara yfirlýsing þeirra stjórnmálamanna sem hana gefa. Eins konar kosningaloforð...“
Ómögulegt er að skýra orð Ólafs Ragnars Grímssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar með því að þeir viti ekki betur. Þeir eru sannarlega ekki heimskir menn. Þeir virðast hins vegar búa yfir dágóðum skammti af ósvífni og auk þess er eins og örvænting sé að grípa þá. Þeir mega ekki til þess hugsa að tapa kosningum þar sem þeim finnst allt vera undir. Þeir eru í baráttu sem þeir líta á sem heilaga og ekki verður annað séð en að þeir telji að nánast allt sé leyfilegt í þágu málstaðarins, eins og að afvegaleiða fólk og reyna að blekkja það. Skilaboð þeirra eru að ríkisstjórn Íslands sé svo illa haldin af Evrópublindu að hún muni einskis svífast til að plata þjóðina inn í Evrópusambandið.
Fyrrverandi forseti lýðveldisins sagði í viðtali fyrir ekki ýkja löngu að kannski hefði enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en einmitt hann sjálfur. Hann ætti því að fagna þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst en ekki hræðast hana svo mjög að hann reyni að afvegaleiða fólk og saka sitjandi ríkisstjórn um blekkingar.
Ríkisstjórn Íslands státar af afburða forsætisráðherra sem vekur athygli út fyrir landsteinana. Við eigum líka dugmikinn utanríkisráðherra sem lætur ekki kveða sig í kútinn þrátt fyrir ótrúlega lágkúrulegar og svæsnar árásir úr ýmsum áttum. Ríkisstjórn Íslands er ekki að þvinga þjóðina á nokkurn hátt með atkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Það er þjóðin sjálf sem ákveður í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort taka eigi upp viðræður við Evrópusambandið.
Verði svarið já 29. ágúst og aðildarsamningur náist í fyllingu tímans verður hann að sjálfsögðu borin undir þjóðina. Ólafur Ragnar og Sigmundur Davíð geta tönglast á því eins og mest þeir mega að þarna sé bara um innihaldslaust kosningaloforð að ræða sem auðvelt sé að svíkja eins og ekkert sé. Staðreyndin er hins vegar að þetta er loforð sem ríkisstjórnin getur ekki svikið því um leið væri hún að svíkja þjóðina á svívirðilegan hátt. Hún hefði gjaldfellt sig svo rækilega í huga almennings að hún ætti sér ekki viðreisnar von.
Það þarf alveg sérstakan þankagang til að láta sér til hugar koma að ríkisstjórnin gæli við það að svíkja loforð sitt um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning við Evrópusambandið. Ólafur Ragnar og Sigmundur Davíð eiga sannarlega ekki í vandræðum með að draga upp þá mynd, enda búa þeir yfir dágóðum skammti af ósvífni. Eins og þeir hafa reyndar ansi oft sýnt okkur.