Eyjan

Birgir Hermannsson skrifar: Ísland best í heimi

Mynd

Andstæðingar Evrópusambandsins hafa löngum átt heimili í Heimssýn, þverpólitískum samtökum Evrópuandstæðinga. Með árunum hefur Heimssýn orðið að sérviskulegum sértrúarsöfnuði, yfirbragðið gamaldags. Andstæðingum Evrópusambandsins finnst oft eins og að einhver erlendur aðili sé að taka eitthvað frá þeim, eða að þeim sé ógnað með einhverjum hætti. Tilfinningar af þessu tagi kalla fram neikvæða umræðu, samsæriskenningar eiga sér frjóan jarðveg. Andlitslyfting Evrópuandstöðunnar var því nauðsynleg þó boðskapurinn væri sá sami og fyrr. Félagsskapurinn Áfram Ísland er hið nýja andlit Evrópuandstöðunnar og vill segja nei á jákvæðum forsendum þann 29. ágúst. Við trúum á Ísland! Við höldum með Íslandi! Áfram Ísland gefur í skyn að félagið sé líkt og stuðningsfélag landsliðs í íþróttum: Allir saman, allir með! Um leið er því óbeint haldið fram að þau sem ætla að segja já þann 29. ágúst – jákvæða fólkið – séu í raun neikvæð, hafi litla trú á landi og þjóð og vilji selja sjálfstæðið fyrir næringarsnauðan súpudisk. Allt eru þetta kunnugleg stef.

Jákvæðni á sterum

Jákvæðni og bjartsýni er auðvitað til fyrirmyndar. Ólafur Ragnar Grímsson hefur við hátíðleg tækifæri mært dugnað landsmanna, gott ef ekki einstaka eiginleika þeirra meðal jarðarbúa. Íslendingar hafa löngum verið veikir fyrir málflutningi af þessum toga, öllum finnst hrósið gott. Ólafur Ragnar fer þó gjarnan yfir strikið í þessum efnum, yfirlýsingar hans ýktar. Þannig var Ólafur Ragnar helsta klappstýra útrásarinnar á árunum fyrir hrun. Hjá honum voru útrásarvíkingar einskonar ofurmenni og einstakt eðli þjóðarinnar útskýrði árangur landsmanna. Þessi ummæli eldast því miður mjög illa. Ólafur Ragnar var ekki einn um ýkjur af þessu taginu. Rétt áður en íslenskt bankakerfi hrundi eins og spilaborg 2008 hélt Viðskiptaráð Íslands fund þar sem boðskapurinn var að Ísland væri best í heimi. Ísland ætti að hætta að bera sig saman við Norðurlöndin sem væru einskonar eftirlegukindur í efnahagsmálum. Um önnur Evrópulönd þyrfti ekki að ræða í þessu samhengi, enginn vildi bera sig saman við þau. Halldór Benjamín Þorbergsson, helsti leiðtogi Áfram Íslands, vill ekki vera neikvæðari en Viðskiptaráðið árið 2007. Ísland er í „algjörum sérflokki“ í efnahagsmálum segir hann  og spilar í „meistaradeild“ á meðan Evrópa hangir í neðri deildunum með allt niður um sig. Tóninn í (jákvæða) nei-fólkinu er svolítið í þessum dúr. Matarverð á Íslandi er ekki það hæsta í Evrópu eins og hagtölur benda til, heldur það lægsta! Ísland best í heimi árgerð 2026.

Fullveldið ofar öllu!

Ólafur Ragnar var á árum áður formaður Alþýðubandalagsins, forvera Vinstri grænna. Þessi saga er flestum gleymd og grafin í dag enda langt um liðið. Eitt af því sem Ólafur Ragnar tók sér fyrir hendur var að leggjast af miklum krafti gegn aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Rökin voru þau sömu og hann teflir fram gegn því að segja já þann 29. ágúst. EES er skerðing á fullveldi og ógn við yfirráð þjóðarinnar yfir auðlindum landsins. Ólafur Ragnar hafði enga trú á því að EES hefði jákvæðar efnahagslegar afleiðingar í för með sér. Enginn raunhæfur samanburður var heldur gerður við reynslu annara landa. Andstaðan var frekar dogmatísk og einhliða, fullveldið ofar öllu! Af sögulegum ástæðum meta Finnar og skilja mikilvægi sjálfstæðis og fullveldis með djúpstæðari hætti en flestar þjóðir. Samkvæmt Ólafi Ragnari var áhugi Finna á EES og síðar fullri aðild að Evrópusambandinu byggður á misskilningi, jafnvel sjálfsblekkingum. Sömu sögu má segja um aðrar Evrópuþjóðir, þær hafa samkvæmt Ólafi Ragnari glatað sjálfstæði sínu. Ef leiðsögn Ólafs Ragnars hefði verið fylgt á sínum tíma hefði Ísland ekki gerst aðili að EES, svo mikið er víst. Forsetinn fyrrverandi vill af skiljanlegum ástæðum ekki rifja þessa staðreynd upp, enda heldur hann nokkurn veginn sömu ræðuna gegn Evrópusambandinu og hann gerði gegn EES á sínum tíma.

Í skugga Brexit

Áfram Ísland vill greinilega slá nýjan tón í oft heldur þrasgjarnri umræðu Íslendinga um Evrópumál. Þetta er skiljanlegt, enda hvílir Brexit eins og þrumuský yfir umræðunni. Brexit er að mati meirihluta Breta mistök og flest af því sem haldið var fram af andstæðingum Evrópusambandsins fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna 2016 hefur reynst rangt. Þetta hefur haft áhrif um um alla Evrópu, líka á Íslandi. Ekki er þó að sjá að hinn „nýi jákvæði tónn“ sé ýkja frumlegur. Annars vegar einhver útgáfa af þeirri kenningu að Ísland sé best í heimi og hins vegar að Evrópuþjóðir séu í raun ekki fullvalda og sjálfstæðar. Hvorug röksemdin er sérstaklega trúverðug eða raunsæ lýsing á veruleikanum.