Eyjan

Gauti B. Eggertsson: Þú verndar fullveldið í hópi sterkra ríkja með sameiginleg gildi

Mynd

Umhverfi frjálsra viðskipta í heiminum er hrunið. Það hrundi þegar Trump hratt af stað tollastríði. Trump er líka í nöp við NATO og ef NATO leysist upp er enginn grundvöllur lengur undir tvíhliða varnarsamningnum við Bandaríkin vegna þess að sá samningur grundvallast á NATO. Við svona aðstæður er mikilvægt fyrir Ísland að skipa sér í hóp með ríkjum sem virða fullveldi annarra ríkja og miklir hagsmunir að vera í tollabandalagi ESB. Gauti B. Eggertsson, hagfræðiprófessor við Brown University, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Gauti B

„Ég sérhæfði mig í áhættustjórn, þetta snýst um áhættustjórn og þá verður maður að hugsa og síðan hefur náttúrlega Trump margoft lýst því yfir að hann sé ekki spenntur fyrir NATO, margoft spurt sína ráðgjafa, er ekki bara spurning um hætta þessu rugli, draga sig út úr þessari stofnun eins og mörgum öðrum alþjóðastofnunum sem hann hefur gert. Og ef að það gerist, hvar sitjum við þá sem herlaus þjóð? Það er verið að tala um einhvern tvíhliða varnarsamning frá '51, samning sem var gerður í sömu viku og sams konar samningur var gerður við Grænland.“

Og byggir á NATO.

„Já og er náttúrlega gerður fyrir hönd NATO, ef það er ekkert NATO, þá hefur þessi samningur ekki nokkurt einasta gildi. Fyrir utan það að samningar sem voru gerðir 1951 af Truman held ég að skipti menn eins og Trump ekki nokkru einasta máli. Allir þeir samningar sem Obama gerði, hann reif í sundur, við Íran og svo framvegis. En einhver samningur gerður 1951, það er náttúrlega bara út í hött. Þannig að ég fór að hafa miklar áhyggjur af stöðu Íslands, þá erum við að hugsa um svona næstu 10, 20, 30 árin. Þú veist, eins og reyndar fyrrverandi forseti vor hefur lýst yfir er Ísland á hernaðarlega mjög mikilvægum stað og það mikilvægi gæti aukist í framtíðinni ef það opnast siglingaleið norður. Og hann talar um þetta sem gífurlega mikinn kost fyrir Ísland að vera á hernaðarlega mikilvægum stað, nema hvað, við erum ekki með neinn her.

Ég myndi þá draga þá ályktun að þá væri kannski mikilvægt að vera í traustu bandalagi við einhvern sem myndi virða okkar fullveldi og það er náttúrlega grunnurinn á því sem ESB er byggt á, sem er samstarf fullvalda ríkja. Og þá einmitt held ég að þjóðin þurfi að spyrja sig að því á sama hátt og þegar þau tóku þátt í NATO sem náttúrlega felur í sér ákveðið afsal fullveldis. Fólk eins og Ólafur Ragnar hélt því fram á þeim tíma. En þú ert að vernda fullveldið þitt vegna þess að þú ert í hópi sterkra ríkja og það sem er að gerast í Evrópu er náttúrlega gífurlega mikil uppbygging núna, varnar.

Það er einhver að tala um ja, Evrópa náttúrlega er ekkert miðað við Bandaríkin á þessu sviði. Jú, jú, það er alveg rétt núna. En ég held að við getum alveg treyst Þjóðverjunum til þess að byggja upp her ef þeir vilja það.“

Þeir hafa nú sýnt það áður að þeir geta það.

„Já, já, það er svolítið skrítið þegar Eystrasaltsþjóðir eru farnar að biðja Þjóðverja að koma þangað sér til varnar. Svo þetta var eitt, ókei, það voru þessi varnarmál. Ég held að þetta sé bara djúpt stórt mál og ég fór í eitthvað hlaðvarp og kallaði eftir því, ekki taka mín orð fyrir það, fáið í guðanna bænum erlenda sérfræðinga í varnarmálum, spyrjið þið hvern sem er að meta þessa stöðu kalt. Mér hefur þótt það svolítið skorta að það sé tekin svona breiðari sýn á þetta vegna þess að Íslendingar eru ekkert sérstaklega vanir að hugsa um þessa hluti.

En síðan náttúrlega annað sem er líka mjög mikilvægt, sem er að umhverfi frjálsra viðskipta í heiminum er hrunið. Það hrundi náttúrlega bara á svokölluðum „Freedom day“ þegar Trump setti tolla á nánast öll ríki, þar á meðal ríki þar sem aðeins bjuggu mörgæsir. Þannig að ókei, hvað þýðir það? Það þýðir það náttúrlega að við erum, sko, við erum innan Evrópska efnahagssvæðisins, sem er mjög gott, en við erum ekki í tollabandalagi með ESB eins og við höfum núna fundið út, vegna þess að það hefur verið talað um ákveðna tolla á vörur héðan. Þá segi ég, þá er eins gott að komast í var. Af hverju? Vegna þess að samningsstaða 400.000 manna markaðar í einhverjum tvíhliða samningum við Kína eða hvaða land sem er er bara ekki nein. Við skiptum ekki nokkru einasta máli fyrir þeirra viðskiptalegu hagsmuni. Þeir rétta okkur bara samning eða gera það af einhverjum þeim ástæðum sem að hefur lítið með viðskiptahagsmuni að gera, vegna þess að þeir eru nánast engir.

Þannig að við erum í hættu þá með að sá stórkostlegi árangur sem hefur tekist að ná á Íslandi, sem er náttúrlega stórkostlegur á síðustu hundrað árum, hefur byggst á viðskiptum við útlönd. Þannig að þau verður að tryggja með sem öruggustum hætti og þetta umhverfi er að breytast og við verðum held ég að bregðast við því og þá blasir náttúrlega við kostur þess að vera í tollabandalagi með 450 milljón manns en ekki 400 þúsund og að ímynda sér að það feli í sér afsal einhverra stórkostlegra tækifæra að gera ekki tvíhliða samninga við önnur ríki miðað við þann samningsstyrk sem 450 milljóna markaður hefur, finnst mér vera alveg furðulegt.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.